01.11.2020
Vegna hertra sóttvarnaráðstafana í grunnskólum landsins verður mánudagurinn 2. nóvember notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki.
Grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forráðamanna um áframhald skólastarfsins. Skóla- og frístundastarf mun hefjast aftur með breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.
Lesa meira
30.10.2020
Í dag voru kynntar hertar sóttvarnaraðgerðir og munu þessar aðgerðir án efa hafa áhrif á skólastarf hjá okkur. Eins og staðan er núna er það ekki orðið ljóst en við munum upplýsa foreldra/forráðamenn um stöðuna um leið og við vitum betur hvernig skólastarfi verður háttað.
Lesa meira
30.10.2020
Starfsáætlun Njarðvíkurskóla fyrir skólaárið 2020-2021 var samþykkt af skólaráði Njarðvíkurskóla 24. september 2020 og í fræðsluráði Reykjanesbæjar 23. október 2020.
Samkvæmt 29 gr. grunnskólalaga ber hverjum grunnskóla að gefa út skólanámskrá og starfsáætlun. Skólastjóri er ábyrgur fyrir gerð þeirra og skal semja þær í samráði við kennara. Skólanámskrá er nánari útfærsla á Aðalnámskrá grunnskóla um markmið, inntak náms og námsmat, starfshætti og mat á árangri og gæðum skólastarfs. Skólanámskrá tekur mið af sérstöðu grunnskóla og aðstæðum og skal endurskoða reglulega.
Lesa meira
27.10.2020
Hvatningaorð frá Hallberu Gísladóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur leikmönnum íslenska landsliðsins til nemenda í Njarðvíkurskóla í tengslum við mikilvægi lesturs:
,,Okkur finnst rosalega mikilvægt að vera dugleg að lesa og skrifa. Verið dugleg að lesa og áfram Ísland“
Njarðvíkurskóli sendir stelpunum í landsliðinu baráttukveðjur fyrir stórleikinn gegn Sviþjóð í kvöld!
Myndbandið er partur af lestrarátaki Njarðvíkurskóli sem er unnið í samstarfi við Þorgrím Þráinsson.
#fyririsland #ksi #lestur
Lesa meira
22.10.2020
Hvatningaorð frá Arnóri Ingva Traustasyni og Samúel Kára Friðjónssyni leikmönnum íslenska landsliðsins í knattspyrnu til nemenda í Njarðvíkurskóla í tengslum við mikilvægi lesturs. Þeir eru með skilaboð til nemenda í Njarðvíkurskóla um að lesa mikið, standa sig í skóla, leggja sig fram og gera eitthvað aukalega.
,,Verið í skóla, klárið skóla, menntið ykkur, því mennt er máttur sem mun nýtast ykkur langt inn í framtíðina.“
Myndbandið er partur af lestrarátaki Njarðvíkurskóli sem er unnið í samstarfi við Þorgrím Þráinsson.
Lesa meira
16.10.2020
Framundan er löng helgi með vetrarleyfi mánudaginn 19. og þriðjudaginn 20. október. Það er enn að bætast í smit í kringum okkur og við hvetjum því alla til að fara mjög varlega næstu daga, gæta að einstaklingsbundnum sóttvörnum og virða nándarmörk. Þeir sem eru enn í sóttkví þurfa að virða hana, halda tveggja metra fjarlægð inn á heimilinu og hitta ekki aðra. Ef smit kemur upp hjá nemanda skólans þarf strax að láta skólastjóra vita með tölvupósti á netfangið: asgerdur.thorgeirsdottir@njardvikurskoli.is
Eigið góða vetrarleyfisdaga með ykkar nánustu og við sendum góðar kveðjur til þeirra sem eru enn í sóttkví.
Við erum öll almannavaranir og saman náum við árangri.
Lesa meira
14.10.2020
Kæru foreldrar/forráðamenn
Ég minni á að samkvæmt skóladagatali þá er vetrarleyfi í Njarðvíkurskóla mánudaginn 19. október og þriðjudaginn 20. október. Kennsla hefst að nýju miðvikudaginn 21. október samkvæmt stundaskrá.
Starfsfólk skólans vonar að nemendur og foreldrar hafi það gott í fríinu.
Bestu kveðjur,
Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri
Dear parents/legal guardians.
19th and 20nd of October will be winter vacation in Njarðvíkurskóli.
School will resume on 21st of October with its regular schedule.
The staff at our school wishes students and their families an enjoyable holiday.
Best wishes,
Ásgerður Þorgeirsdóttir, principal
Ferie zimowe
Drodzy rodzice/opiekunowie
Dnia 19. og 20. Pazdziernik rozpoczna sie ferie w naszej szkole.
Zajecia rozpoczna sie ponownie 21. Pazdeziernik zgodnie z planem lekcji.
Pracownicy szkoly zycza uczniom i ich rodzicom milego wypoczynku.
Pozdrowienia,
Ásgerður Þorgeirsdóttir, dyrektor
Lesa meira
12.10.2020
Valur Axel Axelsson formaður nemendafélags Njarðvíkurskóla og Helga Vigdís Thordersen varaformaður eru með hvatningarorð til nemenda í tengslum við lestrarátak Njarðvíkurskóla.
Í myndbandinu eru Valur og Helga með fyrirliðaband Arons Einars frá landsleik Íslands og Rúmeníu 8. október 2020.
Í myndbandinu segja þau:
Við viljum þakka landsliðinu, Aroni, Gylfa og Þorgrími fyrir þetta geggjaða fyrirliðaband sem við fengum eftir landsleikinn gegn Rúmeníu, þetta er bandið sem Aron var með í leiknum.
Krakkar við viljum minna ykkur á hvað er það er ótrúlega mikilvægt að lesa, að lesa getur verið rosalega skemmtilegt og ef þú veist ekki hvað þú vilt lesa þá getur þú komið niður til Villu á bókasafninu og Villa getur hjálpa þér að finna bókina sem þú hefur áhuga á.
Einnig vilja þau minna á að þeir nemendur sem þurfa á því að halda eða vilja geta fengið sér hljóðbók því það er ekkert öðruvísi að hlusta á hljóðbók heldur en að lesa venjulega bók. Og það er líka bara jafn gaman.
Áfram Ísland!
Áfram Njarðvíkurskóli!
Áfram lestur!
Njarðvíkurskóli þakkar landsliðinu fyrir stuðninginn!.
#fyririsland #ksi #lestur
Lesa meira
09.10.2020
Kæru foreldrar/forráðamenn
Að gefnu tilefni þá vil ég ítreka að það má alls ekki senda börn í skólann sem eru kvefuð, með hálssærindi, slappleika, eða önnur flensulík einkenni.
Góða helgi og farið varlega á þessum skrýtnu tímum.
Bestu kveðjur,
Ásgerður Þorgeirsdóttir,
skólastjóri Njarðvíkurskóli
Lesa meira
08.10.2020
Hvatningaorð frá Aroni Einari Gunnarssyni fyrirliða íslenska landsliðsins til nemenda í Njarðvíkurskóla í tengslum við mikilvægi lesturs:
,,Hvet ykkur til að lesa, lesa. Ég les alltaf fyrir krakkana mína á kvöldin. Þetta er mikilvægt fyrir orðaforðan. Gangi ykkur vel!“
Njarðvíkurskóli sendir strákunum í landsliðinu baráttukveðjur fyrir stórleikinn gegn Rúmeníu í kvöld!
Myndbandið er partur af lestrarátaki Njarðvíkurskóli sem er unnið í samstarfi við Þorgrím Þráinsson.
#fyririsland #ksi #lestur
Lesa meira