Í Njarðvíkurskóla starfa tveir nemendaráðgjafar þær Laufey Bjarnadóttir og Helga Hafsteinsdóttir.
Nemendaráðgjafar vinna að því að veita nemendum stuðning og aðstoð vegna félagslegra,
persónulegra og tilfinningalegra þátta sem hindra það að nemandinn njóti sín í námi og í
samskiptum.
Nemendaráðgjafar eru í náinni samvinna við kennara, veita ráðgjöf og stuðning
við starfsfólk skóla og forráðamenn. Þeir vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga sem
koma að málum nemenda.
Netföng þeirra eru: laufey.bjarnadottir@njardvikurskoli.is og helga.hafsteinsdottir@njardvikurskoli.is