Skóladagatal Ösp

ÖSP

Hér má sjá skóladagatal fyrir Ösp

--------------------------------
Útskýring á skóladagatali fyrir skólaárið 2024-2025
Starfstími nemenda í grunnskóla er á hverju skólaári að lágmarki níu mánuðir og eiga skóladagar nemenda að vera eigi færri en 180. Fjöldi skóladaga nemenda er lögbundinn. Skóladagar nemenda eru á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Skipting milli kennsludaga og annarra skóladaga nemenda er á ábyrgð skólastjóra með samþykki frá starfsfólki í Njarðvíkurskóla, skólaráði Njarðvíkurskóla og menntaráði Reykjanesbæjar

Hérna er útskýring á uppbrotsdögum, skertum skóladögum, starfsdögum og vetrarleyfi:
Uppbrotsdagar eru einstaka skóladagar þar sem stundatöflu nemenda er breytt verulega en upphaf og lok skóladags er því næst þau sömu. Uppbrotsdagar eru nýttir til óhefðbundins skólastarfs s.s. þemadaga og íþróttadaga. Uppbrotsdagar geta mest orðið 10 dagar á skólaárinu. Í Ösp verða átta uppbrotsdagar á skólaárinu 2024-2025 og eru þeir tilgreindir með (U) á skóladagatalinu. Frístundaheimilið Ösp er opið á uppbrotsdögum.
- Uppbrotsdagar á skólaárinu eru: Föndurdagur (11. desember), þemadagar (19., 20. og 21. febrúar), íþróttadagur (30. apríl) og útinám og ferðir (3., 4. og 5. júní).

Skertir skóladagar nemenda teljast ekki til uppbrotsdaga og geta verið tíu talsins. Með skertum skóladögum m.a. átt við skólasetningar- og skólaslitadaga, samtalsdaga og annað sem skólastjóri ákveður í hverjum skóla. Í Ösp verða fimm skertir skóladagar á skólaárinu 2024-2025 og eru þeir tilgreindir með bláum lit á skóladagatalinu.
- Frístundaheimili Ösp er opið á eftirfarandi skertum skóladögum: Samtalsdagar (8. október og 28. janúar).
- Frístundaheimili í Ösp er lokað á eftirfarandi skertum skóladögum: Skólasetning (23. ágúst), jólahátíð (20. desember), árshátíð (4.apríl) og skólaslit (6. júní).

Vetrarleyfi er dagana 25. október, 28. október og 7. mars. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilin eru lokuð. Vetrarleyfisdagar eru tilgreindir með appelsínugulum lit á skóladagatalinu.

Starfsdagar eru fimm á starfstíma nemenda. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilin eru lokuð. Starfsdagar er tilgreindir með gulum lit á skóladagatalinu.
- Starfsdagar á skólaárinu eru: 25. september, 21. nóvember, 13. janúar, 6. mars og 2. júní.

Við gerð skóladagatala er reynt að dreifa uppbrotsdögum, skertum nemendadögum, vetrarleyfisdögum og starfsdögum á vikudagana yfir skólaárið.