Njarðvíkurskóli
Frístundaheimili grunnskólanna (Sumarfrístund), fyrir tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2019), verða opin frá 11. ágúst til skólasetningar. Markmiðin með þessari opnun eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda, að aðlögun nýrra leikskólabarna geti hafist sem fyrst að hausti og að aðlaga tilvonandi 1. bekkinga í grunnskólann sinn.
Skráning er hafin og fer fram í gegnum www.mittreykjanes.is eða www.sumar.vala.is og er skráning fyrir þetta tímabil ótengd skráningu fyrir frístundaheimilin eftir að skólastarf hefst. Gert er ráð fyrir því að foreldrar séu búnir að skrá börnin sín fyrir 12. maí.
Opnunartíminn verður frá 9:00 – 15:00. Börnin fá hádegismat og síðdegisnesti.
*15. ágúst verða frístundaheimilin í Akur-, Háaleitis-, Heiðar-, Holta, Myllubakka- og Njarðvíkurskóla opin frá 10:00 – 15:00 þar sem starfsmannafundur er í upphafi dags.
**15. ágúst verður frístundaheimilið Stapaskóla lokað vegna námskeiðs hjá starfsfólki.
ATH! Foreldrar með systkini á leikskólum eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkin vegna fjölskylduafsláttar í reitinn annað.
Gjaldskrá:
Frístundaheimili Akur-, Háaleitis-, Heiðar-, Holta, Myllubakka- og Njarðvíkurskóla
Gjaldskrá fyrir tímabilið 11. – 22. ágúst 2025
Frístund í 10 daga frá kl. 9:00 – 15:00 - 23.847 kr.
*Opið frá 10:00-15:00 15. ágúst
- þar af hádegismatur og síðdegisnesti - 7.871 kr.
Fjölskylduafsláttur (eingöngu af tímagjaldi – 15.977 kr.) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaheimila.