Skólaslit Njarðvíkurskóla

Kjartan Már og Ásgerður
Kjartan Már og Ásgerður

Skólaslit Njarðvíkurskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans miðvikudaginn 5. júní hjá nemendum í 1.-10. bekk.

1.-9. bekkur
Skólaslit hjá 1.-9. bekk var skipt upp í fjóra hluta: 1., 2. og 3.bekkur, 4., 5. og 6. Bekkur, 7.-9. bekkur og 10. bekk. Skólaslitin byrjuðu á sal þar sem Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri ávarpaði nemendur, forráðamenn og starfsfólk. Að lokum var Njarðvíkurskóla slitið en þetta var 82. starfsár skólans. Að þessu loknu fóru nemendur með sínum umsjónarkennurum í heimastofur og fengu afhentan vitnisburð sinn.

10. bekkur
Á skólaslitunum hjá 10. bekk spilaði Halldór Árni Arnarsson á píanó.

Á skólaslitunum í 10. bekk voru fjölmargar viðurkenningar veittar til einstaka nemenda og nemendahópa. 
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur fyrir einstaka greinar í 10. bekk auk valgreina. Það eru ýmis félagasamtök í nærsamfélagi skólans sem gáfu verðlaunin og kann Njarðvíkurskóli við þeim bestu þakkir fyrir.
- Íslenska: Kristín Björk og Nikolai Leo Jónsson
- Stærðfræði: Nikolai Leo Jónsson
- Stærðfræði (bæði á grunn- og framhaldsskólastigi): Hulda María Agnarsdóttir
- Enska: Nikolai Leo Jónsson
- Enska (á framhaldsskólastigi): Bergur Snær Einarsson
- Danska: Fjóla Osmani
- Enska (bæði á grunn- og framhaldsskólastigi): Mathilde Rós Tindsgarð
- Samfélagsfræði: Fjóla Osmani
- Náttúrufræði: Hulda María Agnarsdóttir og Kristín Björk Guðjónsdóttir
- Áhugavert áhugasviðsverkefni í náttúrugreinum: Gabríel Darri Aðalsteinsson
- Íþróttir: Kristín Björk Guðjónsdóttir
- Íþróttastúlka Njarðvíkurskóla: Sara Björk Logadóttir
-Íþróttadrengur Njarðvíkurskóla: Nikolai Leo Jónsson

Valgreinar:
- Myndlist: Svala Gautadóttir
- Heimilisfræði: Hólmfríður Eyja Jónsdóttir
- Umhverfisverðlaun: Patrik Joe Birmingham
- Félagsstörf: Frosti Kjartan Rúnarsson og Ragna Talía Magnúsdóttir
- Fatalitun: Paulina Cybulska
- Fjármálafræðsla: Kristján Freyr Andrason
- Unglingadeild Björgunarsveitarinnar Suðurnes: Gunnar Páll Guðnason og Frosti Kjartan Rúnarsson

Njarðvíkurskóli veitti viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í 10. bekk: Nikolai Leo Jónsson
Njarðvíkurskóli veitti viðurkenningar fyrir almennt góðan námsárangur til nemenda sem fengu ekki aðrar viðurkenningar en voru ávallt við það að vera með hæstu einkunn í bóklegum greinum: Viktor Garri Guðnason, Aníta Rut Helgadóttir, Hólmfríður Eyja Jónsdóttir, Ragna Talía Magnúsdóttir, Svala Gautadóttir og Sara Björk Logadóttir

Njarðvíkurskóli veitti viðurkenningu fyrir framfarir í námi: Matthildur Mía Halldórsdóttir og Hafþór Nói Hjaltason

Njarðvíkurskóli veitti nemendum úr Ösp viðurkenningu fyrir góðan árangur námi: Ari Sævar Júlíusson fyrir leiklist, Baltasar Þór Björnsson fyrir skólaíþróttir og Emilía Ratanhamani Janpaijit fyrir heimilisfræði

Ásgerður Þorgeirsdóttir skólastjóri veitti háttvísisverðlaun fyrir þrautseigju í námi, frumkvæði og fyrirmyndar framkomu: Fjóla Osmani

Á skólaslitum 10. bekkjar héldu Frosti Kjartan Rúnarsson formaður nemendaráðs og Ragna Talía Magnúsdóttir varaformaður ræður fyrir hönd útskriftarnema. Hildur Björnsdóttir og Margrét Rósa Friðbjörnsdóttir umsjónakennarar 10. bekkjar héldu einnig ræðu. Útskriftarnemendur fengu hátíðartrefla að gjöf frá skólanum í útskriftargjöf.  Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri ávarpaði nemendur, forráðamenn, gesti og starfsfólk.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ hélt ræðu og færði Ásgerði skólastjóra blómvönd sem þakklætisvottorð fyrir frábær störf í Njarðvíkurskóla í 40 ár en hún lætur af stöfum sem skólastjóri við lok mánaðar.

Að lokum var Njarðvíkurskóla slitið en þetta var 82. starfsár skólans.

Myndir í myndasafni eru frá skólaslitum í 10. bekk.