Skólagögn fyrir nemendur

Eins og fram hefur komið í fréttum þá útvegar Reykjanesbær skólagögn fyrir nemendur í grunnskólum hér í bæ. Í morgun fengum við sendingu með póstinum en það voru 4 bretti með stílabókum, möppum, ritföngum auk annars sem nemendur hafa hingað til þurft að kaupa eftir innkaupalistum. Við fögnum þessu framtaki hjá Reykjanesbæ.

Ritföngin eru geymd í skóla þannig að nemendur þurfa að hafa aðgang að skriffærum, litum og vasareikni heima.