Þriðjudaginn 28. janúar er samtalsdagur í Njarðvíkurskóla.
Forráðamenn bóka viðtal við umsjónarkennara í gegnum Mentor. Opnað hefur verið fyrir bókanir og geta forráðamenn því bókað sín viðtöl.
Nemendur eiga að mæta með forráðamönnum sínum í viðtalið.
Þeir forráðamenn sem eru með túlk í viðtalinu fá úthlutað tímum frá umsjónarkennurum og fá tölvupóst á næstu dögum með tímasetningunum.
Óski forráðamenn eftir að hafa samtalið á TEAMS þá þarf að senda póst á umsjónarkennara og óska eftir slíku viðtali en mikilvægt er þó að nemandinn sé einnig í viðtalinu.
Viðtöl fara fram í heimastofum nemenda. Þeir forráðamenn sem óska eftir viðtali við fag-, list- og verkgreinakennara, sem einnig eru til viðtals þennan dag, hafa samband við skrifstofustjóra skólans og bóka þau viðtöl. Hægt er að hringja í síma 420-3000 eða senda póst á njardvikurskoli@njardvikurskoli.is.
Í viðtalinu verður farið yfir almennt gengi nemandans í skólanum og það námsmat sem lokið er á skólaárinu auk annars. Forráðamenn nemenda í 3., 6. og 9. bekk svara viðhorfskönnun eftir viðtalið og biðjum við þá forráðamenn um að staldra við og svara. Niðurstöður viðhorfskönnunar eru mikilvægur hluti í sjálfsmati skóla og notum við svörin til að gera gott skólastarf enn betra.
Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla fyrir nemendur í 1.-4. bekk er opið á samtalsdaginn kl. 8:15-16:15.
Frístundaheimili í Ösp er opið eftir kennslu kl. 11:15-16:15.
Kveðja
Skólastjórn Njarðvíkurskóla