Ný heimasíða hjá Njarðvíkurskóla

Njarðvíkurskóli hefur virkjað nýja heimasíðu fyrir skólann, sem unnin er í vefumsjónarkerfinu Moya frá Stefnu ehf.

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að uppsetningu á síðunni. Við hönnun síðunnar var lögð áhersla á að hún væri einföld í uppbyggingu og snjalltækjavæn.
Eldri síðan var barn síns tíma og fyrir löngu kominn tími á uppfærslu. Það er því von okkar að þessi nýja síða efli upplýsingaflæði frá skólanum og einfaldi upplýsingaleit fyrir nemendur, foreldra og aðra þá sem eiga samskipti við skólann
og aðra þá sem vilja fylgjast með skólastarfinu.

www.njardvikurskoli.is