Lifandi danspartý

Jón Jónsson og Friðrik Dór
Jón Jónsson og Friðrik Dór

Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ ásamt FFGÍR hafa skipulagt viðburð til þess að gefa starfsfólki grunnskóla og nemendum tækifæri til að gleyma sér í söng, dans og gleði fimmtudaginn 10. febrúar kl. 10:00. Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór að halda tónleika fyrir starfsfólk og nemendur í grunnskólum Reykjanesbæjar. Tónleikunum verður streymt frá Hljómahöll og þannig hægt að bjóða upp á frábæra skemmtun í hverri kennslustofu fyrir sig.

Markmiðið er að koma inn með smá gleði, dansa og syngja saman í gegnum vonandi síðustu metra Covid faraldursins með því að bjóða upp á skemmtilegan viðburð.

Myndband tengt frétt - smelltu hérna