Íþróttatreyjudagur í Njarðvíkurskóla

Nemendaráð Njarðvíkurskóla ætlar að standa fyrir íþróttatreyjudegi á morgun, 25. febrúar. Er það gert í tilefni þemadaga sem eru í skólanum 25. og 26. febrúar. Yfirskrift þemadaga í Njarðvíkurskóla er Heilbrigð sál í hraustum líkama. 

Það væri gaman ef sem flestir myndu mæta í íþróttatreyju, er þá sama hvort um sé að ræða til dæmis fótboltatreyju eða körfuboltatreyju.