Þemadagar í Njarðvíkurskóla
Forráðamenn og gestir nemenda í Njarðvíkurskóla fjölmenntu í dag á sýningu á afraksti nemenda að loknum þemadögum.
Eins og gestir sáu þá hafa nemendur og starfsfólk ekki setið auðum höndum á þemadögunum og ótrúlega gaman að sjá afraksturinn og fjölbreytileika verkefna.
Við erum svo lánsöm að forráðamenn og aðrir aðstandendur eru duglegir að mæta á viðburði í skólanum og var engin undantekning á því í þetta skipti.
Kærar þakkir til allra sem komu og tóku þátt í deginum með okkur.
Myndasafn 1
Myndasafn 2