Frábær árshátíð Njarðvíkurskóla

Árshátíð Njarðvíkurskóla var í dag, fimmtudaginn 22. mars. Mikið var um flott atriði sem Elva Rún Davíðsdóttir og Mikael Máni Möller, kynntu til leiks. Nemendur sýndu dansa, leikþætti og söng. Hátíðin var opnuð með flottu opnunaratriði, undir stjórn Margrétar Richardsdóttur, sem nemendur í 4.-10. bekk tóku þátt í og gaf það atriði tóninn fyrir þá skemmtun sem í boði var í dag. Alls voru tólf atriði sýnd í dag sem öll vöktu mikla lukku hjá troðfullu íþróttahúsinu af nemendum og foreldrum.

Eftir árshátíðina fóru gestir og starfsmenn yfir í skóla þar sem boðið var uppá kaffihlaðborð, gos, djús og kaffi sem foreldrar höfðu komið með.

Frábær dagur í alla staði og eiga nemendur og kennarar þakkir fyrir skemmtileg atriði og árshátíðarnefndin og nemendur sem unnu viðhátíðina fyrir frábæran undirbúning og skipulag. Einnig þakkar Njarðvíkurskóli starfsmönnum í íþróttahúsi fyrir frábæra aðstoð.

Nemendur sem unnu að hátíðinni voru: Ása Bríet Bergsdóttir, Börkur Kristinsson, Elva Lára Sverrisdóttir, Elva Rún Davíðsdóttir, Helena Rafnsdóttir, Inga Jódís Kristjánsdóttir, Jan Baginski, Katý Björt Boumihdi, Mikael Máni Möller, Óskar Gíslason, Sverrir Þór Freysson, Vilborg Jónsdóttir og Þórir Ólafsson.