Frá árshátíð í Njarðvíkurskóla
Árshátíð Njarðvíkurskóla verður haldin föstudaginn 24. mars 2023. Hefðbundin kennsla fellur niður þennan dag og frístundaheimilin eru lokuð. Nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 11:30. Forráðamenn mæta út í íþróttahús og koma sér í stúku. Fjölmargir nemendur hafa þó hlutverkum að gegna fyrr um morguninn s.s. að vinna að uppsetningu eða æfa sýningaratriði. Þeir mæta því um morguninn samkvæmt fyrirmælum umsjónarkennara.
Skemmtidagskrá hefst kl. 12:00 í íþróttahúsi við Njarðvíkurskóla og verða þar frátekin sæti fyrir hvern árgang en gestir þeirra fá sæti í stúku. Það er því mikilvægt að bekkurinn geti farið saman úr skólanum yfir í íþróttahúsið. Forráðamenn, eru hvattir til að mæta og taka þátt í hátíðarhöldunum með okkur. Eftir dagskrá í íþróttahúsi eru börn í umsjá forráðamanna sinna. Afar og ömmur og aðrir fjölskyldumeðlimir eru að sjálfsögðu líka velkomin.
Skapast hefur hefð að hafa kaffiveitingar í skólanum fyrir árshátíðargesti að skemmtiatriðum loknum. Í ár verður boðið upp á skúffuköku og öl/kaffi.
Við vonumst til að eiga skemmtilegan dag og minnum nemendur á að mæta stundvíslega og snyrtilega klædd.