Á haustmánuðum 2024 þá kom í heimsókn til okkar fyrrverandi nemandi í skólanum, Hermann Valsson, og myndaði skólann með þrívíddartækni. Með þessu móti er hægt að skoða skólann og það húsnæði sem heyrir undir skólann.
Með þessari tækni er hægt að bjóða nýjum nemendum og aðstandendum þeirra að koma í stafræna heimsókn áður en þau hefja nám við Njarðvíkurskóla. Þetta getur líka verið skemmtileg leið fyrir fyrrum nemendur skólans til að skoða gamla skólann sinn og sjá þær breytingar sem hafa átt sér stað frá því að þeir luku námi við skólann.
Hermann tók myndir bæði inni í aðalbyggingu skólans sem og Ösp, Björk, Brekku og íþróttahúsi skólans.
Fyrir áhugasama þá má fara inn á þessa slóð og hefja för sína um Njarðvíkurskóla og hér má líka skoða Ösp á þessari slóð.